Stórsigur Víkinga á KA-mönnum

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Víkingur í Ólafsvík tók á móti KA og vann yfirburðasigur, 6:0. Markaskorarar Víkinga voru þeir Ragnar Smári Guðmundsson og Ellert Hreinsson, sem báðir skoruðu þrennu. Á Akureyrarvelli áttust við lið Þórs og ÍBV og endaði sá leikur með 2:0 sigri Eyjamanna. Stefán Björn Hauksson skoraði fyrra markið og Pétur Runólfsson það síðara.

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá KA-mönnum í sumar og eftir þetta tap er liðið með níu stig í næstneðsta sæti, en Víkingar voru jafnir þeim að stigum fyrir þessa umferð.

Eyjamenn eru nú fjórum stigum á eftir Fjarðabyggð og Fjölni, sem hafa 23 stig í 3.-4. sæti deildarinnar. Þórsarar eru hins vegar með 12 stig í 7. sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert