Verið er að draga í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sigurvegarinn úr viðureign FH og hvítrússneska liðsins BATE mætir annaðhvort pólska liðinu Zagłębie Lubin eða rúmenska liðinu Steaua Búkarest. Ólíklegt er þó að FH komist í 2. umferð þar sem liðið tapaði 1:3 fyrir hvítrússneska liðinu í Hafnarfirði og þarf því að vinna síðari leikinn með þriggja marka mun á útivelli.
Heimasíða Knattspyrnusambands Evrópu