Næstsíðasta leik fimmtándu umferðar í 1. deild karla í knattspyrnu lauk nú rétt í þessu. Fjarðabyggð vann þá 4:1 sigur á Reyni Sandgerði á Eskifjarðarvelli. Mörk Fjarðabyggðar skoruðu þeir Jóhann Ingi Jóhannsson, Andri Valur Ívarsson og Ingi Steinn Freysteinsson, auk þess sem Sandgerðingar gerðu eitt sjálfsmark. Mark Reynis skoraði Hafsteinn Þór Friðriksson.
Með sigrinum er lið Fjarðabyggðar í fjórða sæti, þremur stigum á eftir Fjölni og einu stigi á undan Eyjamönnum í ÍBV.