Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Grindvíkingar unnu nágrannaslaginn við Njarðvík, 1:0, með marki Paul McShane úr vítaspyrnu, og endurheimtu þar með efsta sæti deildarinnar frá Þrótturum, sem þangað komust síðastliðinn miðvikudag. Gestur Gylfason, leikmaður Njarðvíkur, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins.
Leiknir úr Reykjavík gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann 2:1 sigur á ÍBV. Eyjamenn komust yfir með marki Bjarna Rúnars Einarssonar eftir um hálftíma leik, en Leiknismenn jöfnuðu skömmu fyrir leikhlé með marki Vigfúsar Arnar Jósepssonar úr vítaspyrnu. Vigfús Arnar, sem kom til Leiknis frá KR á lánssamningi fyrir skömmu, endurtók svo leikinn þegar skammt var til leiksloka og þar við sat.