Samuel Eto'o, kamerúnski knattspyrnumaðurinn í liði Barcelona, meiddist í leik með liðinu í gær og verður væntanlega frá keppni næstu tvo mánuðina. Hann tognaði í kálfa eftir að hafa verið inná í sex mínútur þegar Barcelona sigraði Inter Mílanó, 5:0, í árlegum leik um Joan Gamper bikarinn á Camp Nou.
Fyrir vikið missir Eto'o væntanlega af þremur fyrstu leikjum Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en hann gæti þurft að fara í aðgerð vegna meiðslanna.