Kjartan Henry Finnbogason gengur í dag til liðs við sænska knattspyrnufélagið Åtvitaberg og semur við það til loka tímabilsins, eða til næstu tveggja mánaða. Kjartan Henry, sem er 21 árs sóknarmaður, er laus undan samningi við Celtic í Skotlandi eftir að hafa verið þar í hálft þriðja ár.
Åtvitaberg, sem á árum áður var eitt af fremstu liðum Svíþjóðar, er í fjórða sæti 1. deildar. Þrjú efstu liðin vinna sig upp í úrvalsdeildina og Åtvitaberg er tveimur stigum á eftir Ljungskile þegar níu umferðum er ólokið. Ef allt gengur eftir getur Kjartan leikið með Åtvitaberg gegn Ljungskile í sannkölluðum stórleik strax á sunnudaginn.