Gift Leremi, S-afrískur landsliðsmaður í knattspyrnu, lét lífið í umferðaslysi í Jóhannesaborg í nótt. Þessi 23 ára gamli miðvallarleikmaður lést samstundis þegar hann missti stjórn á BMW bifreið sinni á hraðbraut en bifreiðin lenti utan vegar og valt mörgum sinnum.
Leremi, var á mála hjá s-afrísku meisturunum Mamelodi Sundowns, átti að baki fjóra landsleiki og var talinn með efnilegri knattspyrnumönnum S-Afríku.