Margrét Lára og Olga á skotskónum

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll þrjú mörk Vals gegn Fylki.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll þrjú mörk Vals gegn Fylki. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll þrjú mörk Vals sem sigraði Fylki, 3:0, í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu á Valbjarnarvelli í kvöld. Olga Færseth bætti um betur því hún skoraði fjögur mörk fyrir KR sem vann ÍR, 8:0, í Breiðholtinu á sama tíma. Þór/KA lagði Stjörnuna í Garðabæ, 2:1, og Keflavík og Fjölnir skildu jöfn, 1:1.

Valur og KR eru áfram efst og jöfn þegar bæði lið eiga tvo leiki eftir og mætast í hreinum úrslitaleik í næstsíðustu umferð.

Hrefna Jóhannesdóttir skoraði þrjú marka KR gegn ÍR og eitt markanna var sjálfsmark.

Pamel Liddell og Ivana Ivanovic skoruðu fyrir Þór/KA í Garðabænum en Björk Gunnarsdóttir svaraði fyrir Stjörnuna.

Vesna Smiljkovic kom Keflavík yfir en Elín Heiður Gunnarsdóttir jafnaði fyrir Fjölni, 1:1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert