Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari landsliðsþjálfari Portúgals á von á löngu keppnisbanni eftir að hann lamdi Ivica Dragutinovic landsliðsmann Serbíu í gær. Liðin áttust við í Portúgal og endaði leikurinn með jafntefli þar sem að Simao Sabrosa skoraði mark heimamanna en Marko Pantelic jafnaði leikinn rétt fyrir leikslok. Scolari og Dragutinovic áttu í orðaskiptum eftir að leiknum var lokið og endaði sú rimma með því að Scolari sló Dragutinovic í andlitið en hann er leikmaður Sevilla á Spáni.