Leiknir R. sigraði Stjörnuna, 2:1, í 1. deild karla í kvöld en liðin mættust á Leiknisvellinum í Efra-Breiðholti. Vigfús Arnar Jósepsson og Einar Örn Einarsson komu Leiknismönnum í 2:0 í fyrri hálfleik og þeir gerðu síðan sjálfsmark í seinni hálfleiknum.
Leiknum var frestað um síðustu mánaðamót þar sem einn leikmanna Stjörnunnar lék með 21-árs landsliðinu. Leiknir komst með sigrinum í 6. sæti deildarinnar með 22 stig en Stjarnan er í 8. sæti með 19 stig.