Scolari fékk fjögurra leikja bann

Luiz Felipe Scolari.
Luiz Felipe Scolari. Reuters

Luiz Felipe Scolari, þjálfari landsliðs Portúgals í knattspyrnu, fékk fjögurra leikja keppnisbann fyrir að slá Ivica Dragutinovic í andlitið eftir leik gegn Serbíu á dögunum. Það var UEFA sem kvað upp úrskurðinn í dag en Dragutinovic fékk rautt spjald í leiknum og átti hann í útistöðum við þjálfarann eftir að leiknum lauk. Dragutinovic fékk tveggja leikja bann en leiknum lauk með jafntefli, 1:1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert