Eiður í 19 manna hópi Barcelona

Eiður Smári á æfingu með liði Barcelona.
Eiður Smári á æfingu með liði Barcelona. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen er í 19 manna leikmannahópi Barcelona sem Frank Rijkaard þjálfari Börsunga valdi í morgun fyrir leik liðsins gegn UEFA meisturunum í Sevilla. Þetta er stórleikur 4. umferðar spænsku úrvalsdeildarinnar en Börsungar eru með 5 stig og hafa ekki þótt mjög sannfærandi en Sevilla er í öðru sætinu með 7 stig.

Eiður var ekki í leikmannahópi Börsunga í leiknum gegn Lyon í Meistaradeildinni í vikunni en hann var í leikmannahópnum í fyrsta sinn á leiktíðinni um síðustu helgi þegar hann sat á bekknum allan tímann í leik Barcelona gegn Osasuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert