Ísland sigraði Úkraínu, 3:0, í undankeppni Evrópumóts stúlknalandsliða, U17 ára, í knattspyrnu í Slóveníu í dag og tryggði sér þar með sigur í sínum riðli, vann alla þrjá leiki sína. Íslenska liðið er því komið í milliriðil mótsins. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði öll þrjú mörk Íslands í leiknum.