Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrir Åtvidaberg í 2:1-sigri liðsins á útivelli gegn Enköping í sænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Þetta er fyrsta mark hans fyrir félagið en hann skoraði á 44. mínútu og jafnaði leikinn. Sigurmark Åtvidaberg skoraði Bergström á 58. mínútu.
Helgi Valur Daníelsson var í byrjunarliði Öster sem vann Jönköpings Södra, 2:0, á heimavelli. Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Häcken sem tapaði 1:0 á heimavelli gegn Degerfors.