Egill Már Markússon mun dæma úrslitaleik FH og Fjölnis í Visa-bikarnum í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á laugardaginn og það verður síðasti leikurinn sem hann dæmir á ferlinum. Egill Már hefur tekið ákvörðun að leggja flautuna á hilluna og binda endi á 20. ára feril sinn sem dómari.