Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu, sem leikur með sænska úrvalsdeildarliðinu IFK Gautaborg, er efstur í einkunnagjöf hjá sparkspekingum sænska Aftonbladet. Ragnar sem er 21 árs gamall og gekk til liðs við Gautaborgarliðið frá Fylki fyrir tímabilið, hefur staðið afburðavel í vörn liðsins, sem er í toppsæti deildarinnar þegar þremur umferðum er ólokið, og hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína á leiktíðinni.
Í einkunnargjöf Aftonbladet er Ragnar efstur með 67 stig.