Veigar Páll Gunnarsson heldur áfram að skora fyrir Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Í dag gerði hann tvö marka liðsins þegar það sigraði Aalesund, 4:2, en með sigrinum komst Stabæk í annað sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliðinu Brann. Viking tapaði fyrir Tromsö, 2:1, og þar með er Stabæk nú eina liðið sem á raunhæfa möguleika á að ná meistaratitlinum úr höndum Brann.