Íslandsmeistarar Vals lögðu belgíska liðið Wezemaal, 4:0, í öðrum leik sínum í riðlakeppni Evrópukeppni kvennaliða í Belgíu í dag. Öll mörkin litu dagsins ljós á síðustu 20 mínútum leiksins. Fyrliðinn Katrín Jónsdóttir skoraði fyrsta markið, Málfríður Erna Sigurðardóttir skoraði annað marki og markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir bætti við tveimur mörkum á lokakaflanum. Glæsilegur sigur Vals því staðreynd en Valur tapaði fyrsta leik sínum fyrir Frankfurt, 3:1, í fyrradag.