Sex mörk Frakka í Færeyjum

Nicolas Anelka skoraði strax í byrjun.
Nicolas Anelka skoraði strax í byrjun.

Franska landsliðið í knattspyrnu var ekki lengi að hrista úr sér ferðahrollinn í Færeyjum en það komst ekki þangað fyrr um hádegið í dag. Nicolas Anelka og Thierry Henry komu Frökkum í 2:0 eftir aðeins 8 mínútur og lokatölur urðu síðan 6:0.

Karim Benzema skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og þeir Jerome Rothen og Hatem Ben Arfa sitt markið hvor. Skotar unnu Úkraínu, 3:1, í sama riðli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert