Þjóðverjar tryggðu sér keppnisréttinn í úrslitakeppni Evrópumótsins þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Íra í Dublin í kvöld. Jens Lehmann lék að nýju milli stanganna eftir að hafa verið frá keppni síðan í ágúst og hann stóð fyrir sínu og varði nokkrum sinnum mjög vel.
Þjóðverjar hafa 23 stig í D-riðlinum, Tékkar eru í öðru sæti með 20 og Írar í því þriðja með 15 stig.