Grétar til liðs við KR-inga

Grétar Sigfinnur Sigurðarson í baráttu gegn KR-ingum.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson í baráttu gegn KR-ingum. Ómar Óskarsson

Grétar Sigfinnur Sigurðarson, knattspyrnumaður úr Víkingi, er genginn til liðs við KR-inga og semur við þá til fjögurra ára. Grétar staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins í dag.

Grétar er uppalinn KR-ingur en hefur aldrei spilað með félaginu í efstu deild. Hann hefur leikið með Víkingum þrjú af fjórum síðustu árum en var eitt tímabil með Val.

Rætt er við Grétar í Morgunblaðinu á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert