Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona

Eiður Smári leikur á Ibrox í kvöld.
Eiður Smári leikur á Ibrox í kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, verður í byrjunarliði Barcelona þegar flautað verður til leiks í leik liðsins við Glasgow Rangers á Ibrox í kvöld. Frank Rijkaard, þjálfari Börsunga, staðfesti þetta fyrir stundu og sagði þá að þetta væri kjörið tækifæri fyrir Eið Smára að sanna sig. "Eiður Smári er góður leikmaður sem stóð sig vel með okkur í fyrra en hefur verið meiddur. Hann hefur ekki leikið mikið með okkur í vetur vegna meiðslanna en hefur lagt hart að sér og fær tækifæri í kvöld," sagði Rijkaard.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert