Veigar skoraði tvö í lokaumferðinni

Veigar Páll Gunnarsson lauk tímabilinu í Noregi með glæsibrag.
Veigar Páll Gunnarsson lauk tímabilinu í Noregi með glæsibrag. Ómar Óskarsson

Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvö marka Stabæk og lagði upp önnur tvö þegar lið hans burstaði Strömsgodset á útivelli, 5:0, í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld. Stabæk tryggði sér þar með annað sætið í deildinni, sex stigum á eftir meisturum Brann.

Brann steinlá reyndar fyrir Tromsö, 3:0, í gærkvöld en það kom ekki að sök fyrir Íslendingaliðið frá Bergen sem var krýndur norskur meistari um síðustu helgi.

Start féll úr úrvalsdeildinni ásamt Sandefjord en Odd Grenland fær tækifæri í aukaleikjum til að halda sér uppi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert