Eiður Smári Guðjohnsen skoraði annað mark Barcelona í kvöld þegar lið hans sigraði Alcoyano, 3:0, í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu en þettavar fyrri viðureign liðanna og fór fram á heimavelli Alcoyano.
Eiður skoraði markið úr vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok og kom liði sínu í 2:0. Hann átti líka stóran þátt í fyrsta markinu sem Thierry Henry skoraði. Bojan Krkic bætti síðan þriðja markinu við í uppbótartíma. Eiður Smári lék allan leikinn