Jóhannes Karl ekki með á Parken

Jóhannes Karl Guðjónsson verður ekki með gegn Dönum.
Jóhannes Karl Guðjónsson verður ekki með gegn Dönum. Golli

Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley í Englandi, hefur dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Dönum sem fram fer á Parken á miðvikudaginn. Á vef KSÍ kemur fram að hann sé veikur. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur valið Ásgeir Gunnar Ásgeirsson úr FH í hans stað.

Ásgeir Gunnar lék tvo fyrstu landsleiki sína í haust, gegn Norður-Írlandi og Liechtenstein en hann kom inná sem varamaður í þeim báðum.

Jóhannes Karl hefur verið í byrjunarliði Íslands í fjórum af síðustu fimm landsleikjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert