Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Recreativo Huelva í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Eiður leikur á miðjunni og fær að spreyta sig í byrjunarliðinu í fyrsta sinn í deildinni á þessu tímabili.
Lið Barcelona: Valdes - Zambrotta, Puyol, Milito, Abidal - Xavi, Yaya, Eiður Smári - Messi, Henry, Iniesta.