Eiður til Frakklands

Eiður Smári í leik Barcelona gegn Recreativo Huelva á laugardagskvöld.
Eiður Smári í leik Barcelona gegn Recreativo Huelva á laugardagskvöld. Reuters

Eiður Smári verður í leikmannahópi Barcelona þegar það mætir franska liðinu Lyon á útivelli í Meistaradeild Evrópu á morgun. Brasilíumaðurinn Ronaldinho kemur aftur inn í hópinn eftir að hafa fengið hvíld um helgina en Frakkinn Thierry Henry er meiddur og spilar ekki.

Þeir Ronaldinho og franski varnarmaðurinn Lilian Thuram koma inn í leikmannahópinn í stað Thierry Henry og Oleguer sem báðir eiga við meiðsli að stríða.

Börsungar eru efstir í E-riðlinum, hafa 10 stig og dugar jafntefli annað kvöld til að gulltryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert