Eiður í byrjunarliði Börsunga

Eiður Smári Guðjohnsen á fullri ferð.
Eiður Smári Guðjohnsen á fullri ferð. AP

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem sækir Valencia heim í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu en leikur liðanna hefst á Mestalla klukkan 21.

Ronaldinho er aftur kominn á bekkinn hjá Barcelona og þá er Deco sömuleiðis á bekknum.

Byrjunarlið Barcelona er þannig skipað: Valdés, Puyol, Márquez, Milito, Abidal, Touré, Xavi, Eiður Smári, Iniesta, Messi, Eto'o 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert