Eiður Smári Guðjohnsen skoraði þriðja mark Barcelona í 3:0-sigri liðsins gegn Valencia í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld en Eiður var í byrjunarliði Barcelona.
Þetta er fyrsta deildarmark Eiðs fyrir Barcelona á leiktíðinni en hann skoraði í bikarkeppninni í 3:0-sigri gegn Alcoyano þann 13. nóvember s.l.
Leikurinn fór fram á Mestalla, heimavelli Valencia, og skoraði Samuel Eto'o tvívegis í fyrri hálfleik en Eiður Smári bætti við þriðja markinu á 61. mínútu. Barcelona er í öðru sæti deildarinnar með 34 stig en Real Madrid leikur á morgun gegn Osasuna en Real Madrid er efst með 35 stig.