Dómaranefnd evrópska knattspyrnusambandsins hefur valið Kristin Jakobsson, knattspyrnudómara, til starfa í úrslitakeppni Evrópumóts karlandsliða sem fram fer í Sviss og Austurríki í júní á næsta ári. Kristinn mun starfa sem fjórði dómari á mótinu ásamt sjö öðrum dómurum.
„Þetta voru afar ánægjuleg tíðindi sem mér bárust í dag og það verður mikil og góð reynsla sem ég fæ með því að starfa við hlið bestu dómara í álfunni á næst stærsta knattspyrnumóti í heimi,“ sagði Kristinn við mbl.is í kvöld.