Margrét Lára íþróttamaður ársins

Þorsteinn Gunnarsson formaður SÍ afhendir Margréti Láru verðlaunagripinn stórbrotna.
Þorsteinn Gunnarsson formaður SÍ afhendir Margréti Láru verðlaunagripinn stórbrotna. Jón Svavarsson

Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona úr Val var í kvöld útnefnd íþróttamaður ársins 2007 af Samtökum íþróttafréttamanna.

Margrét Lára, sem er 21 árs og fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, er fjórða konan sem hlýtur þessa útnefningu á 52 árum. Hún setti nýtt markamet á Íslandsmótinu þegar hún skoraði 38 mörk fyrir Val, sló markamet A-landsliðsins og skoraði í sigurleikjum Íslands gegn tveimur af tíu bestu landsliðum heims, Frakklandi og Kína. Þá lék hún stórt hlutverk með Val sem náði langt í Evrópukeppninni.

Röð tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins varð sem hér segir:

1. Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2. Ólafur Stefánsson, handknattleikur
3. Ragna Ingólfsdóttir, badminton
4. Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur
5. Birgir Leifur Hafþórsson, golf
6. Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur
7. Örn Arnarson, sund
8. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna
9. Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleikur
10. Ragnheiður Ragnarsdóttir, sund

Margrét Lára Viðarsdóttir er íþróttamaður ársins 2007.
Margrét Lára Viðarsdóttir er íþróttamaður ársins 2007. Guðmundur Rúnar Guðmundsson
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn …
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Frökkum í sumar. Árni Torfason
Margrét Lára á fleygiferð í átt að marki KR í …
Margrét Lára á fleygiferð í átt að marki KR í úrslitaleik Íslandsmótsins. Árni Sæberg
Margrét Lára í hópi ungra fótboltastúlkna. Hún heimsótti fjölmörg félög …
Margrét Lára í hópi ungra fótboltastúlkna. Hún heimsótti fjölmörg félög á árinu til að hvetja stúlkur til dáða í fótboltanum. Guðmundur Rúnar Guðmundsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka