Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Alcoyano í síðari leik liðanna í Konungsbikarnum í kvöld. Ronaldinho er hins vegar ekki í hópi Börsunga í dag.
Brasilíumaðurinn æfði ekki með liðinu á fyrstu æfingu ársins í gær þar sem hann er meiddur á hné samkvæmt því sem segir í spænskum fjölmiðlum.
Börsungar unnu fyrri leik liðanna 3:0 og eru því í góðum málum fyrir síðari leikinn í dag.