Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að ráðist hafi verið á Hannes Þ. Sigurðsson leikmann norska liðsins Viking þegar hann var í jólafríi á Íslandi. Hópur manna réðist á Hannes á götu í Reykjavík og var hann sleginn í andlitið með þeim afleiðingum að hann er þríbrotinn í andliti og verður frá æfingum og keppni næsta mánuðinn í það minnsta.