Tryggvi Guðmundsson skoraði þrennu fyrir FH-inga í kvöld þegar þeir burstuðu Víking R., 5:0, í fyrsta leik deildabikarsins í knattspyrnu í Egilshöllinni.
Atli Guðnason og Davíð Þór Viðarsson skoruðu hin tvö mörkin fyrir Hafnarfjarðarliðið. Í riðli með þessum liðum eru KR, Fjölnir, Leiknir R. og Þór.
Tryggvi er heitur í byrjun tímabils því fyrr í þessum mánuði varð hann fyrstur til að skora fyrir landslið Íslands á þessu ári, í sigurleiknum gegn Armeníu, 2:0, á Möltu.