Daníel Hjaltason skoraði fjögur mörk fyrir Íslandsmeistara Vals þegar þeir unnu stórsigur á ÍBV, 6:0, í deildabikar karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í dag.
Auk Daníels voru það þeir Helgi Sigurðsson og Albert Brynjar Ingason sem sáu um mörkin fyrir Hlíðarendapiltana.
Breiðablik vann líka stórsigur, 5:1, á Grindvíkingum í Reykjaneshöllinni í dag. Kristinn Steindórsson gerði tvö mörk fyrir Breiðablik og þeir Magnús Páll Gunnarsson, Prince Rajcomar og Olgeir Sigurgeirsson eitt hver en Andri Steinn Birgisson gerði mark Grindvíkinga.