Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið mikið úti í kuldanum hjá Frank Rijkaard þjálfara Barcelona á þessari leiktíð. Í 25 leikjum liðsins í deildinni hefur Eiður Smári komið við sögu í 12 leikjum og þar af hefur hann aðeins verið í byrjunarliðinu í sex leikjum. Eiður hefur í þessum leikjum skorað 2 mörk, gegn Valencia í 3:0 sigri um miðjan desember og í 4:0 sigri á Murcia í síðasta mánuði. Eiður hefur skorað þrjú mörk á tímabilinu en hann skoraði í bikarleik gegn Alcoyano.
Á síðustu leiktíð lék Eiður Smári 25 af 38 leikjum Börsunga í deildinni og þar af var hann 14 sinnum í byrjunarliði. Hann náði að skora 5 mörk í þessum leikjum. Þá kom hann við sögu í 8 leikjum í Meistaradeildinni og skoraði í þeim 3 mörk.