Barcelona og Valencia gerðu í kvöld 1:1 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu en liðin áttust við á Camp Nou, heimavelli Barcelona. Xavi Hernandez bjargaði Börsungum en honum tókst að jafna metin á lokamínútunni eftir að David Villa hafði komið Valencia yfir á 70. mínútu.
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Barcelona frekar en Brasilíumaðurinn Ronaldinho.