ÍR Reykjavíkurmeistari í fyrsta sinn

Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR-inga.
Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR-inga. Árni Torfason

ÍR-ingar urðu í kvöld Reykjavíkurmeistarar í meistaraflokki karla í knattspyrnu í fyrsta sinn þegar þeir báru sigurorð af Fram, 1:0, í úrslitaleik sem fram fór í Egilshöll. Jón Hafsteinn Jóhannsson skoraði eina mark leiksins en ÍR-ingar leika í 2. deild en Framarar í Landsbankadeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert