Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sitt 30. mark fyrir A-landslið Íslands í gær þegar íslenska liðið lagði það pólska, 2:0, á Algarvemótinu í Portúgal.
Margrét Lára hefur nú skorað í fimm landsleikjum Íslands í röð og hún hefur náð að koma boltanum í net andstæðinganna í 10 af síðustu 12 landsleikjum Íslands. Í þessum tólf leikjum hefur Margrét skorað 14 mörk, þar á meðal gegn nokkrum af sterkustu þjóðum heims, Bandaríkjunum, Frakklandi og Kína.