Stefán Þór Þórðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, hefur verið lánaður til sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping næsta mánuðinn.
Stefán lék með sænska liðinu í nokkur ár og naut gífurlegra vinsælda meðal stuðningsmanna þess en sneri heim í vetur eftir að hafa tekið þátt í að tryggja liðinu úrvalsdeildarsæti.
Samkvæmt vef Skagamanna tókst liðinu ekki að finna mann til að fylla skarð Stefáns og leitaði því til hans á ný. Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Gunnar Þór Gunnarsson leika einnig með Norrköping.