Bilbao úrskurðaður sigur gegn Real Betis

Armando markvörður Athletic Bilbao borinn af velli í leiknum við …
Armando markvörður Athletic Bilbao borinn af velli í leiknum við Real Betis. Reuters

Úrskurðarnefnd spænska knattspyrnusambandsins tilkynnti í kvöld að Athletic Bilbao teldist sigurvegari í leiknum við Real Betis í 1. deildinni síðasta laugardag. Honum var hætt á 72. mínútu þegar áhorfandi kastaði vatnsflösku í höfuð Armandos, markvarðar Bilbao.

Staðan var 2:1 fyrir Bilbao þegar atvikið átti sér stað og það eru nú staðfestar lokatölur.

Real Betis þarf ennfremur að leika næstu tvo heimaleiki án áhorfenda en félagið fékk jafnframt hrós frá knattspyrnusambandinu fyrir snögg viðbrögð þar sem ódæðismaðurinn var handsamaður all snarlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert