„Þetta var sársaukafullt, eins og hnífur væri rekinn í gegnum lærið á mér þegar ég klemmdist á milli tveggja mótherja, en ég er mun betri í dag,“ sagði Helgi Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu úr Val, sem fór meiddur af velli í landsleiknum gegn Færeyjum í fyrradag.
Helgi tognaði aftan í læri og þar með er tvísýnt hvort hann verður heill fyrir leikinn í Slóvakíu í næstu viku.