Tryggvi tekur sæti Helga í landsliðinu

Tryggvi Guðmundsson í leik með FH-ingum á síðustu leiktíð.
Tryggvi Guðmundsson í leik með FH-ingum á síðustu leiktíð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tryggvi Guðmundsson úr FH hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu sem mætir Slóvökum í vináttulandsleik ytra í næstu viku. Tryggvi tekur sæti Helga Sigurðssonar úr Val sem meiddist í leiknum gegn Færeyingum á sunnudag.

Tryggvi skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3:0 sigri Íslendinga á Færeyingum í Kórnum á sunnudaginn. Það var 12. mark hans fyrir íslenska landsliðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert