Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem sækir Valencia heim í kvöld en seinni leikur liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu hefst á Mestalla leikvanginum klukkan 19.45.
Fyrri leikur liðanna á Camp Nou endaði 1:1 og því er á brattann að sækja fyrir Barcelona. Liðinu gekk þó vel í síðustu heimsókn sinni á Mestalla því í desember skoraði Eiður Smári eitt mark og Samuel Eto'o tvö þegar Barcelona lagði þar Valencia að velli, 3:0.
Lið Barcelona: Valdés - Zambrotta, Puyol, Miloto, Abidal - Touré, Xavi, Eiður Smári - Bojan, Eto'o, Iniesta.
Varamenn: Pinto, Thuram, Sylvinho, Edmílson, Henry.
Lið Valencia: Hildebrand - Miguel, Albiol, Marchena, Moretti - Baraja, Maduro, Joaquin, Silva - Mata, Villa.
Varamenn: Mora, Caneira, Arizmendi, Banega, Morientes.