Theódór Elmar Bjarnason , landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði glæsilegt mark fyrir Lyn þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Lilleström í æfingaleik norsku knattspyrnuliðanna í gær.
Elmar, sem lék vinstra megin á miðjunni, fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína og á vef Lyn var hann sagður annar tveggja bestu manna vallarins. Markið gerði hann með fallegu skoti vinstra megin úr vítateignum, efst í markhornið fjær, í stöng og inn.
Þetta var síðasti leikur Lyn áður en keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Indriði Sigurðsson lék allan leikinn sem miðvörður með Lyn.