Árni ekki löglegur

Árni Gautur Arason.
Árni Gautur Arason. mbl.is/Sverrir

Árni Gautur Arason náði ekki að leika sinn fyrsta leik í suður-afrísku knattspyrnunni um helgina eins og til stóð.

Árni samdi á dögunum við Thanda Royal Zulu og átti að verja mark liðsins gegn Orlando Pirates í efstu deildinni þar í landi á laugardaginn en leikheimild var ekki tilbúin fyrir hann í tæka tíð. Það kom þó ekki að sök því Thanda, sem er í þriðja neðsta sæti deildarinnar, vann óvæntan sigur, 2:1, og styrkti stöðu sína í fallbaráttunni allverulega. Næsti leikur liðsins er ekki fyrr en 12. apríl, gegn Golden Arrows Durban, og Árni Gautur ætti því að vera öruggur með að ná honum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert