Eiður í leikmannahópi Barcelona en enginn Ronaldinho

Eiður Smári á leið inn á hótel í Essen í …
Eiður Smári á leið inn á hótel í Essen í Þýskalandi í dag en Barcelona mætir Schalke annað kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen er í 18 manna leikmannahópi Barcelona sem mætir þýska liðinu Schalke í fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Gelsenkirchen í Þýskalandi annað kvöld. Brasilíumaðurinn Ronaldinho og Portúgalinn Deco fóru ekki með liðinu til Þýskalands en þeir hafa ekki náð að hrista af sér meiðsli.

Lið Barcelona: Valdés, Pinto, Milito, Márquez, Puyol, Xavi, Eiður Smári, Iniesta, Eto'o, Zambrotta, Henry, Edmílson, Sylvinho, Giovani, Thuram, Abidal, Touré y Bojan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert