Spænskir fjölmiðlar, þar á meðal dagblaðið Marca, gera ráð fyrir því að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Barcelona þegar liðið mætir Schalke í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Gelsenkirchen í Þýskalandi í kvöld.
Marca tippar á byrjunarlið Barcelona líti þannig út: Valdes - Zambrotta, Thuram, Puyol, Sylvinho - Xavi, Marguez, Yaya - Iniesta, Eto'o, Eiður Smári.