Bailey þjálfar Árna Gaut

Árni Gautur Arason.
Árni Gautur Arason. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Gary Bailey, fyrrverandi markvörður Manchester United, hefur verið ráðinn markvarðarþjálfari hjá suður-afríska knattspyrnuliðinu Thanda Royal Zulu sem landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason gekk til liðs við á dögunum.

Árni Gautur mun njóta leiðsagnar Baileys, sem lék í marki Manchester United á árunum 1978 til 1987, alls 294 leiki, og þá stóð hann tvisvar á milli stanganna hjá enska landsliðinu. Bailey er 49 ára gamall, ólst upp í Suður-Afríku og lauk ferli sínum með liði Kaizer Chiefs árið 1990.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert