Hannes Þ. Sigurðsson skoraði eitt marka Íslendingaliðsins Sundsvall þegar það vann stórsigur á Ljungskile, 4:0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Hannes skoraði fjórða og síðasta mark Sundsvall í leiknum en liðið hafði tapað þremur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu og sat í neðsta sætinu fyrir leikinn. Hann og Sverrir Garðarsson léku allan leikinn með Sundsvall og Ari Freyr Skúlason kom inná sem varamaður.
Kalmar komst í toppsætið með því að sigra GAIS, 4:0. Jóhann B. Guðmundsson var í byrjunarliði GAIS og Eyjólfur Héðinsson kom inná sem varamaður.